Spegill fortíðar - silfur framtíðar

Sjókonur fyrr og nú

Þær fiska sem róa. Helga Katrín Tryggvadóttir segir frá rannsókn sem hún gerði fyrir  Samgönguráðuneytið árið 2008. Markmiðið var að kanna fjölda þeirra kvenna sem sækja sjóinn á Íslandi, starfsaðstæður, upplifun af starfinu og viðhorfum samfélagsins. Hlutfall kvenna af sjómönnum hefur verið og er ekki í dag mjög hátt en konur á Íslandi hafa þó stundað sjómennsku um aldir. Ekki virðist mikið um mismunun eða fordómum í garð kvenna hérlendis og skýringin á því hvers vegna konur stunda ekki sjómennsku í meira mæli vera að finna í menningarlegum normum fremur en ótta við fordóma. 

Hafnir landsins. Fyrir skömmu kom út mjög áhugaverð bók um hafnir Íslands. Höfundur bókarinnar, Kristján Sveinsson, sagnfræðingur, sem einnig er einn höfunda bókarinnar Vitar á Íslandi,  fræðir gesti um þennan merka menningararf.

 

Staður og stund: Sjóminjasafnið Víkin
Grandagarði, 101 Reykjavík
Fimmtudaginn 4. mars klukkan 20:00