Spegill fortíðar - silfur framtíðar
Menningararfurinn til nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar

Reykjanesviti –  á Valahnjúk á Reykjanesi var 1. desember 1878 tekinn í notkun fyrsti viti landsins. Agnes Stefánsdóttir, fornleifafræðingur hjá Fornleifavernd ríkisins ræðir um vitann og fornminjar á Reykjanesi. Hvert er ástand fornminja á Reykjanesi og eru þær verndaðar og nýttar sem skyldi?

Ósvör – ein elsta verstöð Íslands  og eitt helsta aðdráttarafl Bolungarvíkur. Finnbogi Bernódusson, safnvörður í Ósvör segir frá þessari gömlu verbúð sem m.a. geymir salthús, fiskihjalla, sexæring, dráttarspil, fiskireit og útihjalla sem gefa staðnum blæ liðinna tíma.

Hvernig getum við nýtt söguna og menningararfinn til atvinnuuppbyggingar og nýsköpunar?  Eigum við ónýttan arf við strendur landsins sem auðvelt og fyrirhafnarlítið er nýta til nýsköpunar og atvinuuppbyggingar?


Staður og stund: Sjóminjasafnið Víkin
Grandagarði, 101 Reykjavík
Fimmtudaginn 4. febrúar klukkan 20:00