| Spegill fortíðar - silfur framtíðar |
|
Spor á ströndu
Fimmtudagurinn 7. janúar 2010 klukkan 20:00 Að varðveita söguna við sjóinn. Anna Ólafsdóttir Björnsson, sagnfræðingur segir frá nokkrum þáttum sem hafa áhrif á varðveislu sögustaða og söguminja við ströndina í Sveitafélaginu Álftanesi. Selir, fuglar og sjálfbær þróun er það sem fyrst kemur í hugann þegar hugsað er til Selasetur Íslands á Hvammstanga. Á innan við fimm árum hefur Selasetrinu tekist að skapa sér sess í sem mjög svo áhugaverður viðkomustaður sem byggir á því að nýta auðlindir náttúru og samfélags með þeim hætti að komandi kynslóðior fái notið þeirra. Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir, framkvæmdastjóri segir frá starfsemi setursins. Staður og stund: Sjóminjasafnið Víkin Grandagarði 8 101 Reykjavík
|