| Spegill fortíðar - silfur framtíðar |
|
Fimmtudagur 3. desember 2009. Almættið og Íslands Hrafnistumenn Heilsufar sjómanna. Eru hetjur hafsins óbugandi og hraustari en aðrir? Eða hefur vetrarmyrkur, einsemd og einhæft starf áhrif á þá eins og aðra? Í erindi sínu gerir Sonja Sif Jóhannesdóttir grein fyrir rannsókn sinni á heilsufari og líkamsástandi sjómanna fyrir og eftir 6 mánaða íhlutunartímabil. Íhlutunin fólst í því að auka hreyfingu og bæta mataræði sjómannanna, bæði á sjó og í landi. Sonja Sif er meistari í íþrótta- og heilsufræðum frá læknadeild Háskóla Íslands og íþróttaskor K H Í. Sjóarinn og almættið. Hlíf Gylfadóttir, mannfræðingur og kennar segir frá sjómönnum sem voru í burtu frá fjölskyldum og ástvinum á jólum vegna sjósóknar, hvernig aðbúnaður sjómanna var um borð á jólum og hvernig hann hefur breyst. Einnig segir hún frá siðum sem sjómenn stunduðu til að treysta velvild æðri máttarvalda við sjósóknina. Að lokum segir hún sögu af jólum tengdri Landhelgisgæslunni þar sem ferð til hafnar að halda jólin á aðfangadag með fjölskyldum breyttist í björgunarleiðangur vegna vísbendingar að handan sem varð til þess að tveimur skipum var bjargað úr sjávarháska.
Staður og stund: Sjóminjasafn Reykjavíkur – Víkinni, Grandagarði 8, Reykjavík. Hefst kl. 20.00 |