|
Spegill fortíðar - silfur framtíðar |
|
Íslenska vitafélagið - félag um íslenska strandmenningu mun í samvinnu við Sjóminjasafn Reykjavíkur – Víkina standa fyrir fræðslukvöldum fyrsta fimmtudag hvers mánaðar í vetur. Fyrsta fræðslukvöld vetrarins verður fimmtudagskvöldið 5. Nóvember og hefst klukkan 20:00
Fyrstu fyrirlestrarnir bera yfirskriftina; Á sjó eða brennu ?
Bátar og brennur. Þegar góða veislu gjöra skal, ár er kvatt og nýju heilsað, hefur landinn haft það til siðs síðustu áratugina að brenna trébáta. Í erindi sínu fjallar Agnar Jónsson, skipasmiður um trébáta. Hvað varð um þennan hluta menningararfsins? Hvað eigum við eftir af honum og hver er stefna stjórnvalda í þessum efnum ?
Stolt siglir fleyið mitt. Eikarbáturinn Húni II er stærsta eikarskip á Íslandi sem enn flýtur. Menningararfleið sem er vernduð með því að nýta hana. Atvinnuskapandi gleðigjafi sem auðgar mannlíf á Akureyri og í nágrenni allan ársins hring. Þorsteinn Pétursson, segir frá smíði og notkun Húna II. í gegnum árin.
Staður og stund: Sjóminjasafnið Víkin Grandagarði, Reykjavík Dagskrá vetrarins er að finna á Spegill fortíðar
|