uk germ finn norg
kalfhamarsviti.jpg
Vitafélag
Upphafssiða
Stjórn og Nefndir
Lög
Fundargerðir
Ráðstefnur
Styrktaraðilar
Saga
Gallerí
Spegill fortíðar
Upplýsingar
Vitakort
Hafa samband
Leit
Tenglar
Fréttabréf
Innskráning
Gestabók
Fréttir PDF Prenta Rafpóstur

Á aðalafundi Íslenska vitafélagsins í maí s.l. var ákveðið að breyta nafni félagsins. Það heitir nú Íslenska vitafélagið – félag um íslenska strandmenningu.  Allt frá upphafi hefur félagið sinnt allri strandmenningu og því var eingöngu um litla viðbót að ræða til að undirstrika tilgang og starfsemi þess.

Trébátar  Eitt af því jákvæða sem efnahagsþrengingarnar hafa í för með sér er að fólk fer að huga að eigin uppruna og því sem stendur hverjum og einum næst. Stjórn Íslenska vitafélagsins hefur orðið mjög vör við þetta og hafa t.d. ýmsir komið að máli við okkur til að ræða um menningararfinn. Mest áberandi er áhugi manna á trébátum. Bátum, sem til þessa hafa þótt sóma sér best á áramótabrennum, er nú gaumur gefinn og menn þykja jafnvel meiri ef þeir eiga einn slíkan og kunna að ditta að honum.

Einn stjórnarmanna íslenska vitafélagsins hefur drukkið í sig bátasmíðina með móðurmjólkinni og hefur nú ásamt félögum sínum tekið húsnæði á leigu í miðborg Reykjavíkur þar sem þeir eru að gera við og gera upp gamla trébáta. Annar stjórnarmaður sem brennandi áhuga hefur á trébátum er búsettur á Akureyri og sá þriðji í  Hafnarfirði. Þetta eru dugnaðarforkar, fullir fróðleiks og geta miðlað af þekkingarbrunni sínum ef einhverja vantar upplýsingar eða vilja ræða sameiginlegt áhugamál. Til tals hefur komið að stofna deild innan félagsins fyrir þá sem sérstakan áhuga hafa á þessum þætti strandmenningar. Hafir þú áhuga á að vera í þeim hópi hringdu þá í: Jón Ragnar Daðason  s. 6913002 Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það  Valdimar s. 6932687 Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það   eða Steina Pjé. í síma 6991950 Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Fræðslukvöld og málþing Innan skamms mun vetrardagskrá félagsins birtast á síðunni. Ráðgert er að hún verði með líku sniði og fyrr. Dagskráin á höfðuðborgarsvæðinu verður í Sjóminjasafni Reykjavíkur sem fyrr og svo eru það  Vestfirðir, Siglufjörður og Reykjanes sem bíða heimsóknar.

Norræn strandmenningarhátíð 2011  Íslenska vitafélagið vinnur nú að þvi ásamt innlendum og erlendum aðilum að halda norræna strandmenningarhátíð árið 2011 á Húsavík. Hátíðin hefur fengið nafnið Sail Húsavík og er heimasíðan www.sailhusavik.is Upphaflega kemur hugmyndin frá Norður Siglingu á Húsavík sem ætlaði að halda siglingakeppni á Húsavík með þátttöku erlendra aðila. Mikið vatn hefur til sjávar runnið frá fyrstu vangaveltum og nú stendur verkefnið þannig að helstu forkólfar og þungaviktarfólk frá Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Færeyjum hefur nýverið sótt Húsavík heim, skoðað aðstæður og fundað um verkefnið og framtíð þess. Það er von okkar að þessi viðburður verði til þess að hefja þennan þátt menningararfsins til vegs og virðingar og til að þjappa okkur sem honum unnum enn betur saman. Takið því strax frá síðustu viku júlímánaðar 2011.  Þetta verður hátíð allra landsmanna!!  Allar hugmyndir velþegnar.

Hafðu samband ef þú ert með óskir um umfjöllunarefni á fræðslukvöldum og/eða vilt fá félagið til að taka þátt í fræðslukvöldi/málþingi í þinni heimabyggð.

 

 

 
©2007 Vitafélagið - Lækjargötu 4 - 600 Akureyri | Designed by Smice