|
Íslenska vitafélagið - félag um íslenska strandmenningu. Fræðslukvöld veturinn 2009-2010 í Sjóminjasafni Reykjavíkur – Víkinni 1. Fimmtudagur 5. nóvember 2009. Á sjó eða brennu? Bátar og brennur. Þegar góða veislu gjöra skal, ár er kvatt og nýju heilsað, hefur landinn haft það til siðs síðustu áratugina að brenna trébáta. Í erindi sínu fjallar Agnar Jónsson, skipasmiður um trébáta. Hvað varð um þennan hluta menningararfsins? Hvað eigum við eftir af honum og hver er stefna stjórnvalda í þessum efnum ? Stolt siglir fleyið mitt. Eikarbáturinn Húni II er stærsta eikarskip á Íslandi sem enn flýtur. Menningararfleið sem er vernduð með því að nýta hana. Atvinnuskapandi gleðigjafi sem auðgar mannlíf á Akureyri og í nágrenni allan ársins hring. Þorsteinn Pétursson, segir frá smíði og notkun Húna II. í gegnum árin. 2. Fimmtudagur 3. desember 2009. Almættið og Íslands Hrafnistumenn Heilsufar sjómanna. Eru hetjur hafsins óbugandi og hraustari en aðrir? Eða hefur vetrarmyrkur, einsemd og einhæft starf áhrif á þá eins og aðra? Í erindi sínu gerir Sonja Sif Jóhannesdóttir grein fyrir rannsókn sinni á heilsufari og líkamsástandi sjómanna fyrir og eftir 6 mánaða íhlutunartímabil. Íhlutunin fólst í því að auka hreyfingu og bæta mataræði sjómannanna, bæði á sjó og í landi. Sonja Sif er meistari í íþrótta- og heilsufræðum frá læknadeild Háskóla Íslands og íþróttaskor K H Í. Sjóarinn og almættið. Hlíf Gylfadóttir, mannfræðingur og kennar segir frá sjómönnum sem voru í burtu frá fjölskyldum og ástvinum á jólum vegna sjósóknar, hvernig aðbúnaður sjómanna var um borð á jólum og hvernig hann hefur breyst. Einnig segir hún frá siðum sem sjómenn stunduðu til að treysta velvild æðri máttarvalda við sjósóknina. Að lokum segir hún sögu af jólum tengdri Landhelgisgæslunni þar sem ferð til hafnar að halda jólin á aðfangadag með fjölskyldum breyttist í björgunarleiðangur vegna vísbendingar að handan sem varð til þess að tveimur skipum var bjargað úr sjávarháska. 3. Fimmtudagur 7. Janúar 2010. Spor á ströndu Að varðveita söguna við sjóinn. Anna Ólafsdóttir Björnsson, sagnfræðingur segir frá nokkrum þáttum sem hafa áhrif á varðveislu sögustaða og söguminja við ströndina í Sveitafélaginu Álftanesi. Frá vita til vita um auðuga strönd. Sif Jóhannesdóttir, verkefnisstjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga segir frá þessu strandmenningarverkefni Þingeyinga. 4. Fimmtudagur 4. febrúar 2010 Menningararfurinn til atvinnuuppbyggingar Reykjanesviti – á Valahnjúk á Reykjanesi var 1. desember 1878 tekinn í notkun fyrsti viti landsins. Agnes Stefánsdóttir, fornleifafræðingur hjá Fornleifavernd ríkisins ræðir um vitann og fornminjar á Reykjanesi. Ósvör – ein elsta verstöð Íslands og eitt helsta aðdráttarafl Bolungarvíkur. Finnbogi Bernódusson, safnvörður í Ósvör segir frá þessari gömlu verbúð sem m.a. geymir salthús, fiskihjalla, sexæring, dráttarspil, fiskireit og útihjalla sem gefa staðnum blæ liðinna tíma. 5. Fimmtudagur 4. mars 2010 Sjókonur fyrr og nú Þær fiska sem róa. Helga Katrín Tryggvadóttir segir frá rannsókn sem hún gerði fyrir Samgönguráðuneytið árið 2008. Markmiðið var að kanna fjölda þeirra kvenna sem sækja sjóinn á Íslandi, starfsaðstæður, upplifun af starfinu og viðhorfum samfélagsins. Hlutfall kvenna af sjómönnum hefur verið og er ekki í dag mjög hátt en konur á Íslandi hafa þó stundað sjómennsku um aldir. Ekki virðist mikið um mismunun eða fordómum í garð kvenna hérlendis og skýringin á því hvers vegna konur stunda ekki sjómennsku í meira mæli vera að finna í menningarlegum normum fremur en ótta við fordóma. Hafnir landsins. Fyrir skömmu kom út mjög áhugaverð bók um hafnir Íslands. Höfundur bókarinnar, Kristján Sveinsson, sagnfræðingur, sem einnig er einn höfunda bókarinnar Vitar á Íslandi, fræðir gesti um þennan merka menningararf. 6. Laugardagur 3. Apríl 2010 Vorfagnaður Í vetrarlok kveður félagið vetur og fagnar sumri með málþingi og samverustund frá 13-17 Bryggjur, tiltekt og íslenskir trébátar fyrr og nú. Íslenska vitafélagið - félag um íslenska strandmenningu fagnar vori með málþingi. Tiltektarhöndin. Þegar vorsólin hellir geislum sínum yfir land og þjóð rennur tiltektaræði á marga landsmenn þegar þeir sjá illahirt menningarverðmæti gægjast undan fannferginu. Í stað þess að hlú að þeim og nýta til nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar hendir hugsunarlaus tiltektarhöndin þeim á hauga eyðingar eins og hverju öðru rusli. Í erindi sínu fjallar Valdimar Harðarson, landslagsarkitekt um hugsunarlausu tiltektarhöndina. Siglir mitt fley – Samstarf Nordnorsk fartøyvernsenter og båtmuseum og Síldarminjasafns Íslands fæddi af sér gullfallegan trébát og aflaði báðum aðilum þekkingar í smíði trébáta og bátaverndar. Örlygur Kristfinnsson, forstöðumaður Síldarminjasafnsins segir frá þessu samstarfsverkefni þjóðanna. Smíði, áhöld og varðveisla trébáta. Jón Ragnar Daðason, bátasmiður ræðir um smíði trébáta á Íslandi og höld til bátasmíði. Málþing um vita og strandmenningu á Austurlandi Egilsbúð Norðfirði 28. febrúar 2009 Dagskrá: kl:12:00 Setning málþings kl.12:40 Vitar og nýsköpun - hvernig nýta grannþjóðir okkar vita og strandmenningu. Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Íslenska vitafélagsins kl.13:10 Saga vitans á Austfjörðum. Kristján Sveinsspn, sagnfærðingur við Siglingastofnun www.sigling.is kl.13:40 Kaffihlé 14:00 Hvað eiga Austfirðingar? Hjörleifur Guttormsson, náttúrufræðingur 14:30 Afþreying á sjó. Hörður Sigurbjarnarson, framkvæmdastjóri Norður-Siglingar á Húsavík www.nordursigling.is Vettvangskönnun í Safnahúsið á Norðfirði og kaffi á Frú Lúlú
|