|
Eftir lognmollu sumarsins er félagið nú að hrista af sér slenið. Ákveðið hefur verið að hafa nokkra fundi á landsbyggðinni í samvinnu við heimamenn. Nánar auglýst hér innan skamms. Hvort haldið verður áfram með fyrirlestra í Reykjavík er enn ekki ákveðið. Allar ábendingar þar um eru vel þegnar sem og um aðra starfsemi félagsins. Vonumst til að þið látið sem mest frá ykkur heyra. Stjórnin
|