uk germ finn norg
viti.jpg
Vitafélag
Upphafssiða
Stjórn og Nefndir
Lög
Fundargerðir
Ráðstefnur
Styrktaraðilar
Saga
Gallerí
Spegill fortíðar
Upplýsingar
Vitakort
Hafa samband
Leit
Tenglar
Fréttabréf
Innskráning
Gestabók
Fundarboð!! PDF Prenta Rafpóstur

 

Aðalafundur Íslenska vitafélagsins verður haldinn föstudaginn 22. maí klukkan 18:00 í Forsetaherberginu á Lækjarbrekku í Reykjavík.

Dagskrá fundar:

Skýrsla formanns.

Reikningsuppgjör s.l. árs.

Lagabreytingar

Kosning formanns, fjögurra aðalmanna í stjórn og tveggja varamanna.

Kosning tveggja skoðunnarmanna til eins árs.

Fjárhagsáætlun og ákvörðun um félagsgjöld.

Önnur mál.

Þeir sem áhuga hafa á að bjóða sig fram til stjórnarstarfa vinsamlegast hafið samband við formann félagsins, Sigurbjörgu Árnadóttur í síma 695 1266 eða með pósti Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Stjórnin 

 

Áhrif sjóslysa á lítil samfélög er yfirskrift fræðsluerindis Steinars J. Lúðvíkssonar, rithöfundar og blaðamanns.

Steinar þarf vart að kynna fyrir Íslendingum, en hann hefur skrifað fjölda greina og bóka um líið við sjávarsíðuna. Nýjasta aðkoma hans á því sviði er ritsafnið Silfur hafsins - gull Íslands. Þriggja binda ritverk um síldveiðar Íslendinga sem kom út í lok síðasta árs.

 

Hjátrú sjómanna er síðan viðfangsefni Hlífar Gylfadóttur, mannfræðins. Hlíf ólst upp í Vestamannaeyjum en lagði síðan stund á mannfræði við Háskóla Íslands. Hún hefur safnað saman afar fróðlegum og skemmtilegum heimildum um hjátrú sjómanna, sem sýnir að þessar hetjur hafsins eiga líka sína mjúku hliðar.

 

Þetta er jafnframt síðasta fræðslukvöld vetrarins og hér með þakkar stjórn Íslenska vitafélagsins öllum þeim sem lagt hafa okkur lið með fræðslu og skemmtun í vetur. Einnig viljum við þakka Sjóminjasfani Reykjavíkur fyrir frábært samstarf og ykkur sem sótt hafa þessi fræðslukvöld.

Sjáumst sem flest á miðvikudagskvöldið.   

 

Staður og stund: Víkin-Sjóminjasafn, Grandagarði 8, Reykjavík

Kl. 20:00 miðvikudagskvöldið 16. apríl

Fyrirlestrarnir eru öllum opnir.

 
©2007 Vitafélagið - Lækjargötu 4 - 600 Akureyri | Designed by Smice