|
Fyrsta viðfangsefnið eru verbúðir Íslands frá landnámi til dagsins í dag. Þó yngsta kynslóð landsins hafi litla vitneskju um líf í verbúð, þá var það hlutskipti margra sem eldri eru að fara á vertíð og búa í verbúð. Verbúðirnar höfðu yfir sér blæ sem var allt í senn; ljósrauð rómantík, ævintýri, sukk, svínarí, dóp og þrældómur. Flestir áttu stutta vist í verbúðum landsins á meðan aðrir áttu þar lögheimili sitt svo árum skipti. Miðvikudagskvöldið 6.febrúar ætlar Ragnar Edvardsson, fornleifafræðingur að fræða okkur um verbúðir landsins frá landnámi til dagsins í dag. Ragnar er óumdeilanlega öðrum fróðai um þennan þátt menningararfsins. Eftir kaffihlé mun Sólveig Brynja Grétarsdóttir segja frá reynslu sinni af verbúðarlífi. Sólveig Brynja eyddi sex sumrum á sjöunda áratug síðustu aldar við síldarsöltun á Seyðisfirði og bjó í verbúð. Nú er hún stundarkennari í íslensku við Háskóla Íslands auk þess sem hún kennir nýbúum íslensku. Staður og stund: Víkin-Sjóminjasafn, Grandagarði 8, Reykjavík Miðvikudagskvöldið 6. febrúar kl. 20:00 Aðgangseyrir: Ókeypis fyrir félagsmenn Íslenska vitafélagins og námsmenn, 500 kr. fyrir aðra. Innifalið fyrirlestrar og kaffi í hléi. Miðvikudagskvöldið 26. febrúar verður viðfangsefnið sjóslys og hjátrú sjómanna. Fyrirlesarar Steinar j. Lúðvíksson og Hlíf Gylfadóttir, mannfræðingur
|