uk germ finn norg
vitibanner3.jpg
Vitafélag
Upphafssiđa
Stjórn og Nefndir
Lög
Fundargerđir
Ráđstefnur
Styrktarađilar
Saga
Gallerí
Spegill fortíđar
Upplýsingar
Vitakort
Hafa samband
Leit
Tenglar
Fréttabréf
Innskráning
Gestabók
Spegill fortíđar - silfur framtíđar PDF Prenta Rafpóstur
Vor í verum og selur við strönd

Miðvikudagskvöldið 26. mars segir grásleppukóngurinn Skarphéðinn Árnason frá rauðmaga- og grásleppuveiðum. Skarphéðinn er 83.ára og hefur marga fjöruna sopið. Hann fór á sínar fyrstu veiðar fljótlega eftir að hann lærði að ganga og hefur frá ýmsu að segja sem

Eftir kaffihlé tekur Pétur Jónsson á Selasetri Íslands á Hvammstanga við og fræðir okkur um selinn og Selasetur Íslands.

Allt frá upphafi byggðar hefur búsetan byggst mjög á nýtingu lands og sjávar. Auk hefðbundins búskapar var hlunnindanýting við ströndina mjög mikil. Selveiðar voru hér áður fyrr víða stundaðar og nýting á spiki, kjöti og selskinni drjúg tekjulind á mörgum jörðum. Sjálfbærar veiðar voru og eru enn stundaðar, þó í litlum mæli sé í dag.

Nýlega er farið að horfa á hlutina á annan hátt og er selaskoðun fyrir ferðamenn hafin á fleiri en einum stað á landinu. Selasetur Íslands sem var stofnað árið 2005 og er staðsett á Hvammstanga. www.selasetur.is

Óskum okkur til hamingju!

Formaður Íslenska vitafélagsins, Sigurbjörg Árnadóttir tók nýverið á móti sérstakri viðurkenningu frá Markaðsstofu Norðurlands. Á viðurkenningarskjali stendur m.a. …fyrir áhugaverða nýjung í ferðaþjónustu. Annars vegar fyrir strandmenningarverkefni sín og hins vegar fyrir forystuhlutverk í vitamálum á Norðulandi.

Þessi viðurkenning er hvatning fyrir okkur öll sem viljum veg strandmenningar á Íslandi sem mestan og bestan.

Nýtt útlit.

Eins og þið sjáið hefur síða félagsins fengið smá andlitslyftingu. Stjórn félagsins hvetur félagsmenn og aðra velunnara að hafa samband og tjá sig um starfsemi félagsins og annað sem ykkur liggur á hjarta.

 

 

 

 
©2007 Vitafélagiđ - Lćkjargötu 4 - 600 Akureyri | Designed by Smice