uk germ finn norg
vitibanner.jpg
Vitafélag
Upphafssiða
Stjórn og Nefndir
Lög
Fundargerðir
Ráðstefnur
Styrktaraðilar
Saga
Gallerí
Spegill fortíðar
Upplýsingar
Vitakort
Hafa samband
Leit
Tenglar
Fréttabréf
Innskráning
Gestabók
Vitaskilti á Húsavík afhjúpað PDF Prenta Rafpóstur
Vitaskilti á Húsavík afhjúpað

Föstudaginn 4. ágúst 2006 afhjúpaði samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson vitaskilti á þaki gömlu verbúðarinnar á Húsavík. Á skiltinu eru að finna myndir og upplýsingar um vita á svæðinu frá Gjögurtáarvita í vestri og austur fyrir Langanes.

Hörður Sigurbjarnarson, framkvæmdastjóri Norðursiglingar, hafði forgöngu um málið með stuðningi Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga og Siglingastofnun. Atvinnuþróunarfélagið mun síðan vinna áfram með sögu vitanna, merkja gönguleiðir á milli þeirra, koma upp skiltum um fuglaskoðun og fl.

Íslenska vitafélagið fagnar þessu framtaki Húsvíkinga og óskar þeim, Þingeyingum og landsmönnum öllum til hamingju.

Rétt eins og vitarnir tryggðu atvinnuöryggi þegar þeir voru reistir, geta þeir nú stuðlað að nýsköpun og atvinnuuppbyggingu.
 
©2007 Vitafélagið - Lækjargötu 4 - 600 Akureyri | Designed by Smice