|
Eiland - myndlistarsýning í Gróttu
5 íslenskir myndlistarmenn opnuðu 15. júlí 2006 sýningu í Gróttu. Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Friðrik Örn Hjaltested, Haraldur Jónsson, Hrafnkell Sigurðsson og Ragnar Kjartansson sýna ljósmyndir, myndbandsverk, teikningar og útilistaverk. Sýningin stendur til 20. ágúst 2006.
Friðrik Örn ljósmyndari sýnir myndir af Gróttuvita ásamt 4 öðrum vitum sem sjást úr turni Gróttuvita. Vitamyndirnar eru á veggjum Gróttuvitans. Vitaverkefni Friðriks Arnar hefur verið 3 ár í vinnslu. Vitamyndirnar eru sérstakar að því leyti að þær eru myndaðar í vetrarnóttinni þar sem vitinn lýsir í öllu sínu veldi. Frekar upplýsingar á www.eiland.is.
Eiland er opið daglega samkvæmt flóðatöflu sem sjá má á vefsíðunni www.eiland.is og hægt er að komast í göngufæri frá eynni með strætó nr. 11. Kaffihúsið Eiland hefur verið opnað í tilefni sýningarinnar, þar sem hægt er að grípa sér kaffi eða tebolla og meðlæti.
|