uk germ finn norg
vitabanner4.jpg
Vitafélag
Upphafssiđa
Stjórn og Nefndir
Lög
Fundargerđir
Ráđstefnur
Styrktarađilar
Saga
Gallerí
Spegill fortíđar
Upplýsingar
Vitakort
Hafa samband
Leit
Tenglar
Fréttabréf
Innskráning
Gestabók
Stórhöfđaviti hundrađ ára PDF Prenta Rafpóstur

 

Stórhöfðaviti hundrað ára

Veðurguðirnir brostu við Stórhöfðavitanum á hundrað ára afmæli hans og síðasta vitaverði landsins þriðjudaginn 14. nóvember, þegar eyjaskeggjar, ásamt gestum þeirra fögnuðu afmælinu.
Frá 1910 hefur sama fjölskyldan vaktað ljós lífsins í vitanum á Stórhöfða. Óskar Jakob Sigurðsson, vitavörður er nú eini starfandi vitavörður landsins og einn fárra starfandi vitavarða á Norðurlöndum.
Í afmælisathöfn sem Vestmannaeyjabær hélt var Óskar gerður að fyrsta heiðursfélaga Íslenska vitafélagsins. Formaður félagsins færði honum heiðursskjal og blóm, og Vestmannaeyingum mynd af Óskari við að merkja fugla. En Óskar hefur ekki einungis vaktað ljósið í vitanum heldur einnig merkt fugla, tekið veður og séð um mengunarmælingar.
Auk Vestmannaeyinga tóku m.a. þátt í hátíðarhöldunum Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, Hermann Guðjónsson, siglingamálastjóri, þingmenn Suðurlands og fulltrúar Náttúrfræðistofnunar og Veðurstofu Íslands.

 
©2007 Vitafélagiđ - Lćkjargötu 4 - 600 Akureyri | Designed by Smice