|
Aðventustemming í Sjóminjasafni Reykjavíkur - Víkinni
Stemming aðventu ríkti í kaffisalnum hjá Sigrúnu í Sjóminjasafni Reykjavíkur – Víkinni á öðru fyrirlestrakvöldi Íslenska vitafélagisins þann 29. nóvember sl. Fornleifafræðingar vinna í kapp við ágang sjávar við rannsókn á fornminjum við Kolkuós, sem á miðöldum var m.a. höfn biskupsstólsins á Hólum í Hjaltadal. Þetta, hundaeign landsmanna á þessum tíma og margt fleira var meðal þess sem fornleifafræðingurinn Ragnheiður Traustadóttir fræddi gesti um.
Eftir kaffihlé sagði Ævar Sigdórsson gestum frá ferðþjónustunni í Hornbjargsvita sem hann hefur rekið síðustu tvö sumur. Þrátt fyrir efasemdir og jafnvel hrakspár blómstrar starfsemi hans við vitan á Hornströndum og komast færri að en vilja í gistinu hjá honum.
|