|
Strandminjar og sjóskrímsli |
|
|
|
|
Strandminjar og sjóskrímsli í Sjóminjasafni Reykjavíkur
Fornminjar við strendur landsins eru lítt rannsakaðar og mikið af þeim enn óskráð. Ár hvert eru veittir styrkir til fornminjarannsókna en einungis lítið brot af þeim verkefnum tengjast ströndu. Þetta og mart fleira kom fram í fyrirlestri Agnesar Stefánsdóttur, fornleifafræðings við Fornleifavernd ríkisins á fyrirlestrakvöldi Íslenska vitafélagsins miðvikdagskvöldið 31.janúar. Þó Íslendingar séu öðrum trúaðri á ósýnileg fyribæri og það þyki jafnvel flott að hafa séð huldufólk, þá hafa sjóskrímsli og aðrir sjó- og vatnabúar ekki átt uppá pallborðið hjá landanum. Í bráðskemmtilegum fyrirlestri Þorvaldar Friðrikssonar kom fram ýmislegt skemmtilegt og fróðlegt um trú og fordóma gagnvart vatnaverum. Í ár mun koma á markað fræðirit Þorvaldar um sjó- og vatnaskrímsli á Íslandi, en hann hefur í meira en áratug safnað frásögnum og teikningum fólks sem telur sig hafa séð þessa sjárvar- og vatnabúa.
Fyrirlestur Agnesar Stefánsdóttur
|