uk germ finn norg
viti.jpg
Vitafélag
Upphafssiđa
Stjórn og Nefndir
Lög
Fundargerđir
Ráđstefnur
Styrktarađilar
Saga
Gallerí
Spegill fortíđar
Upplýsingar
Vitakort
Hafa samband
Leit
Tenglar
Fréttabréf
Innskráning
Gestabók
Síldarćvintýri PDF Prenta Rafpóstur

 

Silfur hafsins og síldin á Sigló


Síðasta fræðslukvöld vetrarins í fyrirlestraröðinni sem Íslenska vitafélagið hefur staðið fyrir í vetur í samvinnu við Sjóminjasafn Reykjavíkur – Víkinni var miðvikudagskvöldið 25. apríl. Yfirskrift þessa fróðleiksmola var Spegill fortíðar – silfur framtíðar. Síðasta miðvikudag hvers mánaðar frá því í október hafa gestir og gangandi getað gengið að því vísu að tveir fyrirlesarar væru á staðnum og heitt kaffi á könnunni í hléi. Fyrirlestrarnir hafa m.a. verið um fornminjar, mat, sjóskrímsli, tónlist, trébáta, síldina og stöðu íslenskrar strandmenningar. Áheyrendur mismargir á öllum aldri en alltaf hafa umræður verið líflegar og sum andlitin hafa sést á nær öllum kvöldunum.

Síðastir í röð fyrirlesara vetrarins voru þeir Hreinn Ragnarsson, kennari á Laugarvatni og Örlygur Kristfinnsson, forstöðumaður Síldarminjasafnsins á Siglufirði.
Eins og vænta mátti gerðu þeir báðir efni sínu bráðskemmtileg skil og kvöddu gestir Víkina fróðari en áður um áhrif síldar á íslenskan efnahag og undruðust afrek Siglfirðinga sem reist hafa glæsilegasta safn landsins í fámenninu.

Þeir sem misst hafa af fróðleikskornum í sjóminjasafninu s.l. vetur geta hlýtt á þrjá af fyrirlesurum vetrarins og einn til flytja erindi sín á Akureyri sunnudaginn 29. apríl og siglt síðan með eikarbátnum Húna um Eyjafjörð.




www.vitafelagid.com

 
©2007 Vitafélagiđ - Lćkjargötu 4 - 600 Akureyri | Designed by Smice