|
SPEGILL FORTÍÐAR – SILFUR FRAMTÍÐAR Íslensk strandmenning staða hennar og framtíð
Í AMTSBÓKASAFNINU Á AKUREYRI SUNNUDAGINN 29.APRÍL Í sól og stuttbuxnaveðri, sem minnti fremur á júlímánuð en apríl, sátu áhugasamir einstaklingar á Amtsbókasafni Akureyrar og hlýddu á fyrirlestra um strandmenningu þjóðarinnar. Í ávarpi formanns vitafélagsins kom fram að það var að beiðni Steina Pjé sem ákveðið var að félagið byði Akureyringum og nærsveitarmönnum uppá brot af þeim fyrirlestrum sem verið hafa í Sjóminjasafni Reykjavíkur í vetur.
Ávarp formanns.
Sóley Una Pétursdóttir, verkefnissjóri skráningamála hjá Fornleifavernd ríkisins á Sauðárkróki, hljóp í skarðið fyrir Sigurð Bersteinsson, minjavörð og sagði frá stöðu fornminjaskráninga og rannsókna á landinu.
Örlygur Kristfinnsson forstöðumaður á Síldarminjasafninu á Siglufirði fræddi fólk um tilurð safnsins, sögu síldveiða á Siglufirði og áhrif safnsins á ímynd bæjarins og bæjarbrag. www.herring.siglo.is
Eftir hádegishlé rakti Hörður Sigurbjarnarson, framkvæmdastjóri Norður-Siglingar á Húsavík sögu fyrirtækisins og sagði frá uppbyggingu þess á landi. Og einum gesta varð á orði síðar um daginn: “Mikið værum við rík ef það væri Norður-Sigling í hverjum firði.” www.nordursigling.is
Emil Ragnarsson, skipaverkfræðingur hélt síðasta erindi dagsins og fjallaði þar um sögu trébáta á Íslandi. Kom þar m.a. fram að á millistríðsárunum voru Reykjavík og Akureyri fremst í flokki í smíði trébáta. Seinni heimsstyrjöldin var tími mikillar grósku í smíði fiskiskipa og á árunum 1945-1947 var blómaskeið í endurnýjun fiskiskipastólsins með trébátum.
Edward H. Huijbens, forstöðumaður Ferðamálaseturs Íslands, stjórnaði samkomunni af mikilli röggsemi og myndarskap. Að fyrirlestrum loknum beið Húni, tilbúinn til að sigla með gesti um Eyjafjörð í sól og sumaryl undir leiðsögn Jóns Hjaltasonar, sagnfræðings. Vonandi eiga Akureyringar og aðrir sem leið eiga um bæinn eftir að upplifa það innan skamms að sjá Húna og aðra báta sigla reglubundið um Eyjafjörð.
www.vitafelagid.com
|