uk germ finn norg
viti2banner.jpg
Vitafélag
Upphafssiđa
Stjórn og Nefndir
Lög
Fundargerđir
Ráđstefnur
Styrktarađilar
Saga
Gallerí
Spegill fortíđar
Upplýsingar
Vitakort
Hafa samband
Leit
Tenglar
Fréttabréf
Innskráning
Gestabók
Lög PDF Prenta Rafpóstur
 
Lög Vitafélagsins
Malarif
Malarif
...

1. gr.
Nafn félagsins er Íslenska vitafélagið - félag um íslenska strandmenningu.
 
2 . gr.
Heimili þess og varnarþing er hjá formanni hverju sinni.

3. gr.
Íslenska vitafélagið - félag um íslenska strandmenningu eru frjáls félagasamtök. Markmið félagsins er að...

  • auka áhuga og þekkingu á vitum og sögu þeirra.
  • vinna að söfnun, skráningu og miðlun upplýsinga um vita og strandminjar þeim tengdum.
  • stuðla að verndun vita og strandminja sem mikilvægum hluta af menningararfi þjóðarinnar.
  • stuðla að fjölbreytilegri notkun vitans sem samrýmist verndun hans og sögu.
  • koma á samvinnu við minjasöfn og aðrar opinberar stofnanir.
  • koma á samvinnu við erlend vitafélög og stofnanir með sambærileg markmið.

4. gr.
Félagar geta verið:
einstaklingar, félög, fyrirtæki og stofnanir sem áhuga hafa á yfirlýstum markmiðum félagsins. Árlega greiða þeir félagsgjöld sem aðild eiga. Félagsgjöld eru ákveðin á aðalfundi hverju sinni. Með aðild að félaginu fylgir eitt atkvæði á aðalfundi.. Stjórnin getur vísað þeim félagsmönnum úr félaginu sem ekki greiða árgjald, brjóta gegn reglum félagsins eða skaða félagið á annan hátt. Úrsögn úr félaginu tekur gildi á næsta aðalfundi. Hætti félagi aðild eða sæti brottvikningu á hann ekki kröfu á félagið. 5. gr.
Almennir félagsfundir skulu haldnir eftir því sem þurfa þykir, en þó eigi sjaldnar en einu sinni á ári.

6. gr.
Æðsta vald félagsins er í höndum aðalfundar. Aðalfund skal halda fyrir lok maí mánaðar ár hvert. Til hans skal boðað með minnst 10 daga fyrirvara.

Dagskrá aðalfundar skal vera:

Skýrsla formanns.

  1. Reikningsuppgjör s.l. árs
  2. Lagabreytingar.
  3. Kosning formanns, fjögurra aðalmanna í stjórn og tveggja varamanna.
  4. Kosning tveggja skoðunarmanna til eins árs.
  5. Fjárhagsáætlun og ákvörðun um félagsgjöld.
  6. Önnur mál
Framhaldsaðalfund má halda að beiðni stjórnar eða 1/3 hluta félagsmanna. Aðalfundur og framhaldsaðalfundir eru löglegir ef löglega er til þeirra boðað.

7.gr.
Stjórn félagsins skal skipuð fimm aðalmönnum og þremur varamönnum. Formaður skal kosinn sérstaklega en aðrir stjórnendur skipta með sér verkum þannig að einn er gjaldkeri, annar ritari, þriðji varaformaður og einn meðstjórnandi. Ef einn stjórnarmanna hættir skal varamaður taka sæti hans fram að næsta aðalfundi. Stjórn félagsins stýrir öllum málefnum félagsins á milli aðalfunda, sér um að framfylgja markmiðum félagsins og kemur fram fyrir hönd þess.

8. gr.
Formaður boðar til stjórnarfunda. Hver stjórnarmaður getur krafist stjórnarfundar og skal formaður boða til hans innan viku frá því beiðnin kemur fram.

9 . gr
Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn fyrir 1. mars og sendar félagsmönnum til kynningar með aðalfundarboði. Lagabreytingar þarf að samþykkja með ¾ hluta greiddra atkvæða á aðalfundi eða framhaldsaðalfundi..

10. gr.
Félaginu má slíta ef 2/3 fullgildra félaga samþykkja það á aðalfundi eða framhaldsaðalfundi og þá renna eignir félagsins til stofnunar eða einstaklinga sem vinna að þeim markmiðum sem félagið hafði.

11. gr.
Lög þessi öðlast gildi á stofnfundi félagsins 26. apríl 2003.
 
©2007 Vitafélagiđ - Lćkjargötu 4 - 600 Akureyri | Designed by Smice